2009 er ekki 2007 það mikið er á hreinu, því ekki er hlaupið að því í dag að kaupa vélsleða, fjórhjól og nýjan jeppa, þeas allt í sama mánuðinum. En 2009 er komið til að vera geri ég ráð fyrir og ástandið auðvitað magnað. Mig dauðlangar í vélsleða en verð að láta mér nægja bara að bíða eftir sumrinu svo ég komist á jetski. Kannski bara kannski verður 2010 eins og 2007, þeas að maður getur keypt allt sem manni langar í fyrir erlend myntkörfulán, væri það ekki frábært að geta upplifað 2007 aftur ? árið sem engin hafði áhyggjur, allir áttu allt, eða gátu að minnsta kosti keypt allt sem þeim langaði í, ég meina myntkörfulánin björguðu öllu.
Ég fór td í verslun um daginn því mig sárlega vantar loftljós í alla íbúðina mína, var að skoða hitt og þetta spurði svo afgreiðslumanninn allskonar spurningar, hann sagði mér að þetta væri ekki til og þetta væri heldur ekki til, og hann gæti ekki einu sinni pantað þetta því hann vissi ekkert hvenær hann hugsanlega gæti fengið þetta sent, tja eða greitt þetta. Svo endaði hann bara á því að segja mér að rússaljósin inni hjá mér væru bara töff, fólk ætti bara eftir að sjá það. Kannski hafði hann rétt fyrir sér, eða kannski var hann bara svona rosalega svartsýnn.
breytti útlitinu aðeins þannig að núna kannski nenni ég að skrifa eitthvað hérna. aldrei að vita hvað gerist í framtíðinni eins og flestir vita eftir uppákomur síðustu vikna.
mig langar hér með að bjóða öllum sem ég þekki formlega í heimsókn til mín í nýju íbúðina, þeas þegar þeim hentar að koma í heimsókn. og á ég þá við á eðlilegum tímum, ekki eldsnemma á morgnanna og heldur ekki á nóttunni. engin kaffivél er til staðar og mun það vera þannig í nánustu framtíð þar sem ég drekk ekki kaffi og ætla mér ekki að drekka kaffi. hinsvegar verður gestum boðið uppá ískalt vatn beint úr krananum og gerist það ekki betra en akkúrat heima hjá mér það er nú bara alveg á hreinu, enda íbúðin staðsett í 110.
fluttur í 110, þeas norðlingaholtið og er að hafa það rosalega gott hérna. íbúðin virkar mjög stór en það er sennilega bara vegna þess hversu tóm hún er því ég (hélt ég ætti nóg) á ekki nógu mikið af húsgögnum og allskonar þannig dóti. Sem þýðir að íbúðin er ekkert voðalega heimilisleg eins og er en mér líður samt rosalega vel hérna og gott að vera kominn aftur í 110.
svo er búið að vera mikið af hröfnum hérna síðustu daga og vikur.
stundum hef ég ekkert að segja og skrifa samt helling um nákvæmlega ekki neitt. ég skrifar um hluti sem engin nennir að lesa um og ég gleymi því um leið og ég legg frá mér tölvuna.
svo á hinn veginn, þá hef ég stundum helling að segja en veit ekki alveg hvernig ég á að koma orðum að því. þeas þá skrifa ég helling sem engin skilur því æsingurinn er það mikill að orðin og setningarnar verða bara vitleysa þegar ég reyni að koma því frá mér.
svo líka kemur fyrir að mig langar að skrifa helling en langar samt ekkert að hver sem er geti lesið það, er enn brenndur síðan að fyrir einhverjum árum að þá stal dv færslu frá mér og birti í blaðinu hjá sér. eeekki alveg það sem ég vil aftur. kannski samt engin hætta á því þar sem engin les þetta hvort eð er. sem er fínt því þá er engin að kvarta yfir því að ég sé ekki að skrifa neitt hérna reglulega.
en ég fór í gær á fjórhjól og síðan í rafting. fjórhjóladæmið var hörmung, þeas fengum bara að keyra á ca 35 kmh og það er ekki gaman. hinsvegar var raftingið algjör snilld og alltaf gaman að henda vælukjóum útí ískalda ánna.
er byrjaður að gera helling þessa daga, búin að fara nokkrum sinnum í heilun, byrjaður að mæta í ræktina (sem þýðir harðsperrur dauðans þessa dagana). sem er auðvitað allt bara snilld, nema fyrir utan það að strákarnir sem ég er að æfa með eru klikkaðir í hausnum, þeir eru að æfa fyrir eitthvað helv… kraftlyftingarmót og láta mig bara æfa alveg eins og þeir eru að gera. Ég sem vil bara vera helköttaður og með mega sixpack. en já ætli maður endi ekki bara í kraftlyftingum eftir ca 1 ár.
já og ekki má gleyma því að þeir ætla að senda mig í spinning líka, það verður eflaust fjör.
er búin að taka að mér verkefni sem mun sennilega taka mig í kringum 1 ár að klára. mig bæði kvíður fyrir þessu og hlakka til að takast á við þetta. besta er að það munu sennilega margir njóta góðs af því sem ég þekki. ræði þetta kannski betur þegar ég hef unnið að þessu í smá tíma.
í gegnum tíðina hef ég gert alls konar mistök, núna hins vegar ætla ég mér að hætta því. það er nefnilega of mikið af mikilvægum hlutum sem ég hef klúðrað með mistökum, mistökum sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með því að hugsa bara örlítið lengur og betur.
já ég ætla sem sagt að reyna þetta einu sinni enn, ath hvort ég nenni að standa í þessu yfirhöfuð. Þeas að skrifa eitthvað hérna on a regular basis.
Er að leita mér að íbúð núna á fullu, en er samt ekki alveg tilbúin til að borga það sem markaðurinn býður uppá í dag. sérstaklega þar sem ég er að borga alltof mikið af peningum næstu 5 mánuði, þeas peningum sem ég gæti alveg eins hent í ruslið.
fór uppá mýrdalsjökul á sjómannadaginn 1. júní þeas. mjög gaman að komast loksins aðeins útúr bænum og í náttúruna. nema hvað helv… sleðinn hans Alla bilaði sem þýddi að við vorum bara í ruglinu, fórum ekki það sem við ætluðum (strútslaug) og enduðum á því bara að leika okkur aðeins á jöklinum.
skrifa eitthvað meira hérna seinna. er bara rétt að koma mér í gírinn.